Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga


Stjórnskipuleg staða stofnunarinnar er sú að hún starfar á grundvelli gildandi laga, reglugerða og staðbundinna samþykkta sveitarfélaganna. 


Aðalfundur byggðasamlagsins kýs árlega 3ja manna stjórn FSSF.


Aðildarsveitafélögin skipa sameiginlega velferðarnefnd svæðisins til 4ra ára að loknum sveitarstjórnarkosningum. Nefndina skipa, skv. samþykktum byggðasamlagsins, 1 fulltrúi Grundarfjarðarbæjar, 2 fulltrúar frá Snæfellsbæ og 2 frá Sveitarfélaginu Stykkishólmi og jafnmargir til vara frá hverju tilgreindra sveitarfélaga.


Allir félagsþjónustþættir sveitarfélaganna falla undir Velferðarnefndina.


FSS starfrækir skólaþjónustu á grundvelli stofnsamþykktra byggðasamlags sveitarfélaganna, gildandi laga um leik- og grunnskóla; laga nr. 91/2008 um grunnskóla, laga nr. 90/2008 um leikskóla, ásamt og ákvæðum gildandi reglugerðra um rekstur beggja skólastiga, þ.á.m. reglugerð nr. 584/2010, um sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum. Stofnunin er auk þess ráðgefandi bæjar- og skólayfirvöldum þessara skólastiga.


Hver leik-og grunnskóli þjónustusvæðis FSS er stjórnsýslulega sjálfstæður, undir stjórn viðkomandi skólastjórnanda, sveitarstjórnar og skólanefndar.