Um okkur
Byggðasamlag sveitarfélaganna Eyja- og Miklaholtshrepps, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar á og rekur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, bs. (FSS).
Hlutverk stofnunarinnar er að annast skólaþjónustu við grunn- og leikskóla aðildarsveitarfélaganna sem og félagsþjónustu, barnavernd, málefni fatlaðs fólks og stuðningsþjónustu sveitarfélaganna.
Stofnunin hefur aðsetur að Klettsbúð 4, 360 Hellissandi, Snæfellsbæ. Auk þess hafa starfsmenn vinnuaðstöðu í að Borgarbraut 2 í Stykkishólmi, á bæjarskrifstofunni í Grundarfjarðarbæ ásamt starfsaðstöðu í grunn- og leikskólum svæðisins.
Þá rekur FSS vinnustofur- og dagþjónustur fatlaðs fólks; Ásbyrgi í Stykkishólmi og Smiðjuna í Ólafsvík, Snæfellsbæ.
Nýverið er hafin í Ólafsvík bygging 5 þjónustuíbúða til sjálfstæðrar búsetu fatlaðra einstaklinga.

