Sértæk þjónusta við fatlaða



Þjónusta við fatlaða er veitt skv. lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra.


Helstu þjónustuþættir eru eftirfarandi:


Búsetuþjónusta

Búsetuþjónusta er veitt fólki með fötlun, sem er 18 ára eða eldra, hvort sem það býr í eigin húsnæði, leiguhúsnæði eða íbúðakjarnanum Ólafsbraut 62-64 . Þjónustan er veitt samkvæmt þjónustusamningi við viðkomandi aðila og byggir á mati á þjónustuþörf að höfðu samráði við viðkomandi eða talsmann hans. Í búsetuþjónustu felst heimilishjálp, félagsleg liðveisla og frekari liðveisla.


Setja inn undirsíðu


Heimililshjálp

Heimilishjálp er aðstoð við almennt heimilishald,- þrif, þvotta o.þ.h.


Félagsleg liðveisla

Félagsleg liðveisla er hugsuð til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og er fyrst og fremst aðstoð til að njóta menningar- og félagslífs.


Frekari liðveisla

Frekari liðveisla er sú aðstoð sem þarf, til viðbótar við heimilishjálp og félagslega liðveislu, til að fólk með fötlun geti haldið eigin heimili og felur í sér margháttaða aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs.


Ferðaþjónusta



Ráðgjöf


Aðgangur að ráðgjöf  er hjá ráðgjöfum Félags og skólaþjónustu Snæfellinga í síma 430-7800 eða senda á netfangið fssf@fssf.is



Virkni og hæfing


Fyrir hendi eru tvær virkni og hæfingastöðvar Ásbyrgi í Stykkishólmi og Smiðjan í Ólafsvík. Þar sem unnið er við ýmiskonar störf.


Setja inn Facebook síður Ásbygis og Smiðjunnar


Notendastyrð persónuleg aðstoð (NPA)

Í lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er kveðið á um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.


Notendastýrð persónuleg þjónusta er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Í reglum felagsþjónustunnar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk er tekið mið að handbók um NPA og leiðbeinandi reglum um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Félagsþjónustan tekur á móti umsóknum t.d. í formi bréfs.


Reglur um notendarstýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk hjá Félags og skólaþjónustu Snæfellinga


Þjónusta við börn / fjölskyldur fatlaðra barna


Foreldrar barna geta fengið aðstoð við að halda utan um málefni barna sinna varðandi samræmingu á þjónustu. Sjá meðfylgjandi tengil  (farsæld barna)


Ráðgjafi getur tekið þátt í teymisunfum foreldra og þjónustuaðila ef óskað er og veitt ráðgjöf á heimili barnsins.


Stuðningsþjónusta /liðveisla

 

Fötluð börn skulu eiga kost á stuðningsþjónustu í formi liðveislu en með því er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félaslega einangrun , t.d. aðstoð við að njóta menninga og félagslíf og efla viðkomandi til sjálfshjálpar. Við mat á þjónustuþörf er tekið mið af aðstæðum viðkomandi.


Stuðningsfjölskyldur


Fjölskyldur fatlaðra barna skulu eiga kost á stuðningsfjölskyldu eftir því sem þörf  krefur. Hlutverk hennar er að taka fatlað barn í umsjá sína og skamman tíma í þeim tilgangi að létta álag af fjölskyldu þess og gefa börnunum möguleika á aukinni félagslegri þátttöku. Samið er um ákveðinn dagafjölda í mánuði, oftast um 2 sólahringar og foreldrar eru hafðir með í ráðum um val á fjölskyldu. Þörf fyrir þjónustu er metin í hverju tilfelli fyrir sig út frá fötlun barns og aðstæðum fjölskyldu. Heimilt er í sérstökum tilfellum að veita fjölskyldun einstaklinga eldri en 18 ára þjónustu stuðningsfjölskyldu.


Umsókn um stuðningsfjölskyldu er inn á þjónustugátt viðeigandi sveitarfélags.


Að gerast stuðningsfjölskylda


Leyfi þarf til að gerast stuðningsfjölskylda og sér Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála um leyfisveitingar, sjá nánar Leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda  Ísland.is (island.is).



Síðast uppfært 26. apríl 2026