Fjárhagsaðstoð


Samkvæmt lögum ber einstaklingum skylda til að framfæra sjálfa sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Sveitarfélög hafa jafnframt skyldu til að veita íbúum sínum þjónustu og aðstoð við að leysa úr erfiðleikum eða koma í veg fyrir að þeir geti ekki séð fyrir sér og sínum. Annars vegar er möguleiki á framfærslustyrk frá sveitarfélaginu, en hins vegar er heimilt að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna og til að koma til móts við þarfir barna vegna þátttöku í þroskavænlegu félagsstarfi.


Sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafa sett reglur um fjárhagsaðstoð sem ráðgjafar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fylgja við vinnslu umsókna. Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.


Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga með því að hringja í síma 4307800 eða senda tölvupóst á netfangið fssf@fssf.is


Reglur um fjárhagsaðstoð