Félagsleg ráðgjöf
Í félagslegri ráðgjöf felst meðal annars að veittar eru upplýsingar um ýmis réttindamál en einnig er veitt ráðgjöf vegna atvinnu- og endurhæfingarmála, fjármála, húsnæðismála og fjölskyldumála. Lögð er áhersla á persónulegan stuðning, samræmingu þjónustu og lausnamiðuð stuðningsviðtöl. Haft er að leiðarljósi að styðja einstaklinginn eða fjölskylduna til sjálfshjálpar þannig að hver einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu.
Farið er með persónulegar upplýsingar málsaðila samkvæmt ströngustu reglum um persónuvernd og gögn vistuð samkvæmt lögum þar að lútandi. Félagsleg ráðgjöf er veitt samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar vegna eftirfarandi:
- Réttindi til ýmissa bóta
- Samskipta í fjölskyldunni
- Málefna barna og unglinga
- Fjárhagserfiðleika
- Hjónaskilnaða
- Fötlunar
- Öldrunnar
Starfsfólk félagsþjónustu er bundið þagnarskildu um málefni einstaklinga sem þangað leita.
Hægt er að óska eftir viðtali hjá ráðgjafa Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í síman 4307800 eða senda tölvupóst á netfangið fssf@fssf.is
