Húsnæðisstuðningur
Húsnæðisbætur eru veittar samkvæmt lögum númer 75/2016.
Sótt er um húsnæðisbætur á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Stuðningurinn er ætlaður einstaklingum og fjölskyldum sem þurfa félagslega aðstoð til að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og- /eða annarra félagslegra erfiðleika. Úthlutað er samkvæmt reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Sótt er um sérstakan húsnæðisstuðning á þar til gerðum umsóknum.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Sótt er um inn á þjónustugátt viðeigandi Sveitarfélags.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning
Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15 - 17 ára barna
Húsnæðisstuðningur til foreldra eða forsjáraðila 15 - 17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum vegna náms fjarri lögheimili er veittur án tillits til húsnæðisbóta og án þess að fram fari mat á tekjum og eignum. Úthlutað er samkvæmt reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Hér má finna umsókn um húsnæðisstuðning vegna 15 - 17 ára barna.
Sótt er um inn á þjónustugátt viðeigandi Sveitarfélags.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir 15 - 17 ára barn
