Stuðnings- og stoðþjónusta
Stuðnings- og stoðþjónusta felur í sér fjölbreytta aðstoð fyrir einstaklinga, fjölskyldur og heimili. Markmið þjónustunnar er að aðstoða og styrkja viðkomandi sem þarf aðstæðna sinna vegna á stuðningi að halda við heimilishald, athafnir dagslegs lífs og til þess að rjúfa félagslega einangrun. Efla sjálfshjálp og gera viðkomandi kleift að búa sem lengst í heimahúsi. Auk þess að stuðla að farsæld barna með það að markmiði að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi, án hindrana.
Stuðnings- og stoðþjónusta er veitt samkvæmt lögum nr. 49/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Hægt er að óska eftir viðtali við ráðgjafa velferðar á fjölskyldusviði með því að hringja í síma Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness 430 7800 eða senda tölvupóst á netfangið fssf@fssf.is.
Einnig er hægt að sækja um stuðnings- og stoðþjónustu í íbúagátt viðkomandi sveitarfélags.
Stuðnings- og stoðþjónusta getur til dæmis falið í sér:
- Aðstoð við persónulega umsjá og heimilishald.
- Félagslegan stuðning.
- Heimsendingu matar.
- Aðstoð við innkaup og erindrekstur.
- Aðstoð við umsjá veikra eða fatlaðra barna.
- Öryggisinnlit.
- Sólarhringsþjónustu á heimilum fatlaðs fólks í búsetukjörnum.
