Skólaþjónusta FSSF annast sérfræðiþjónustu við grunn- og leikskólana á Snæfellsnesi, á grundvelli gildandi laga og reglugerða þ.a.l.


Meginþjónustuþættir eru náms- og starfsráðgjöf, sálfræðiþjónusta, skimanir og grunngreiningar á þroska og líðan nemenda; greiningar, ráðgjöf og eftirfylgni talmeinafræðings; skólafélagsráðgjöf; umsjón og skipulagning árlegrar endurmenntunar skólastofnan; þátttaka í starfi nemendaverndarráða grunnskóla, ráðgjöf til skóla og foreldraráða skólastofnana.


Starfsfólk skólaþjónustu FSSF eru auk forstöðumanns, skólasálfræðingur, náms- og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur og skólafélagsráðgjafi.


Sérfræðiþjónusta FSSF er grundvölluð á útfylltu tilvísanablaði til skólaþjónustu, með upplýstu samþykki málsaðila, þ.e. skóla sem og forráðamanns nemanda.