Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Í Eyja- og Miklaholtshreppi, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ og Sveitarfélaginu Stykkishólmi Sbr. lög um húsnæðisbætur nr 75/2016.
I. kafli Almenn ákvæði
1. gr.Lagagrundvöllur
Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu umfram húsnæðisbætur sem veittar eru á grundvelli laga um húsnæðisbætur nr. 75/2016. Einnig er stuðst við leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings skv. 2. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga með síðari breytingum.
2. gr. Markmið
Markmið sérstaks húsnæðisstuðnings er að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað sökum:
· lágra tekna/lítilla eigna
· þungrar framfærslubyrði
· félagslegra ástæðna
II. kafli Umsóknir og mat
3. gr. Skilyrði fyrir samþykki
Umsækjandi skal uppfylla öll eftirfarandi skilyrði til að umsókn verði samþykkt og verða skilyrðin að vera uppfyllt á meðan umsækjandi fær greiddan sérstakan húsnæðisstuðning.
1) Réttur umsækjenda til húsnæðisbóta á grundvelli laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur skal hafa verið sannreyndur.
2) Umsækjandi skal vera orðinn 18 ára á umsóknardegi og eiga lögheimili á þjónustusvæði Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga þegar sótt er um.
3) Leiguhúsnæði skal vera samþykkt íbúðarhúsnæði á almennum markaði í lögheimilis-sveitarfélagi nema um sé að ræða húsnæði fyrir 15-17 ára börn, sbr. 9. gr. þessara reglna.
4) Samanlagðar tekjur umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, séu undir efri tekjumörkum skv. 6. gr. þessara reglna.
5) Samanlagðar eignir umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri á síðastliðnu ári, séu ekki hærri en 7.500.000 kr.
6) Hafi viðeigandi gögn ekki borist innan 30 daga frá umsóknardegi fellur umsókn úr gildi.
Heimilt er að samþykkja umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning þrátt fyrir að skilyrði í 1.tl. 1. mgr. 3.gr. sé ekki uppfyllt, þegar fyrir liggur að umsækjandi er í húsnæðisleit. Í þeim tilfellum hefst þó greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings ekki fyrr en skilyrði 1. tl. 1. mgr. 3. gr. er uppfyllt.
4. gr. Umsókn
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga, í umboði sveitarstjórna á Snæfellsnesi, annast afgreiðslu umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning. Umsóknareyðublað er aðgengilegt í þjónustugátt á heimasíðu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Umsókn skal vera undirrituð af heimilismönnum, 18 ára og eldri, til staðfestingar á þeim upplýsingum sem þar koma fram.
Við undirritun umsóknar veita umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga heimild til að afla upplýsinga frá opinberum aðilum, svo sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), skattayfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, Menntasjóði námsmanna og sýslumönnum. Sama gildir um heimild til að afla upplýsinga frá öðrum aðilum, svo sem viðurkenndum menntastofnunum innan hins almenna menntakerfis og leigusölum íbúðarhúsnæðis, sem nauðsynlegar eru við afgreiðslu umsóknar. Hið sama á við um öflun nauðsynlegra upplýsinga frá sambærilegum aðilum erlendis þegar við á.
Eftirfarandi fylgigögn þurfa að fylgja með umsókn:
1) Staðfesting frá HMS um rétt umsækjanda til húsnæðisbóta.
2) Staðgreiðsluyfirlit allra heimilismanna 18 ára og eldri.
3) Greiðsluáætlun TR (ef við á)
4) Skattframtal allra heimilismanna 18 ára og eldri.
Hafi umbeðin gögn ekki borist 30 dögum frá umsóknardegi er umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning synjað.
III. kafli Fjárhæð og greiðsla sérstaks húsnæðisstuðninga
5. gr. Fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings
Sérstakur húsnæðisstuðningur er reiknaður sem ákveðið hlutfall af almennum húsnæðisbótum þannig að fyrir hverjar 1.000 kr. fær leigjandi greiddar 1.000 kr. í sérstakan húsnæðisstuðning, að teknu tilliti til lækkunar samkvæmt öðrum skilyrðum 5. gr. og að teknu tilliti til áhrifa tekna samkvæmt 6. gr. reglna þessara.
Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur geta aldrei numið hærri fjárhæð en samtals 85.000 kr. Framangreindar fjárhæðir koma til endurskoðunar þegar breyting verður á grunnfjárhæðum húsnæðisbóta samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 75/2016.
Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur geta aldrei samanlagðar farið yfir 75% af húsnæðiskostnaði. Greiðslubyrði umsækjanda skal þó ávallt vera að lágmarki 50.000 kr. Með húsnæðiskostnaði í reglum þessum er átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði sbr. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur.
6. gr. Áhrif tekna á fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings
Við útreikning sérstaks húsnæðisstuðnings skal miða við neðangreind tekjumörk miðað við fjölda heimilismanna. Miðað skal við sömu tekjur og liggja til grundvallar ákvörðun húsnæðisbóta hverju sinni.
Með tekjum er átt við allar tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt nr. 90/2003, sbr. og 3. mgr. 17. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Tekjur undir neðri tekjumörkum skerða ekki rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings. Sérstakur húsnæðisstuðningur fellur niður við efri tekjumörk í hverju tilfelli en skerðist hlutfallslega upp að því marki.
| Fjöldi heimilismanna | Neðri tekjumörk | Efri tekjumörk á ári | Neðri tekjumörk á mánuði | Efri tekjumörk á mánuði |
|---|---|---|---|---|
| 1 | 5.153.000 | 6.440.000 | 430.000 | 537.000 |
| 2 | 6.815.000 | 8.520.000 | 567.000 | 710.000 |
| 3 | 7.975.000 | 9.970.000 | 665.000 | 830.000 |
| 4 eða fleirri | 8.645.000 | 10.850.000 | 720.000 | 900.000 |
Upphæðir þessar miða við vísitölu neysluverðs í ágúst 2025 og eru uppreiknaðar árlega í ágúst.
7. gr. Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings
Skilyrði þess að umsækjandi fái greiddan sérstakan húsnæðisstuðning er að hann fái einnig greiddar húsnæðisbætur á grundvelli laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur.
Sérstakur húsnæðisstuðningur greiðist umsækjanda í fyrstu viku hvers almanaksmánaðar og er greiddur eftir á fyrir leigutíma undanfarandi almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hefjist leigutími síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag almanaksmánaðar. Samningur sem kann að vera í gildi milli umsækjanda og leigusala eða þriðja aðila um fyrirframgreiðslu húsnæðiskostnaðar breytir engu hér um.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er ekki greiddur aftur í tímann.
Sveitarfélögum á Snæfellsnesi er heimilt að greiða sérstakan húsnæðisstuðning til leigusala samkvæmt skriflegri beiðni umsækjanda.
Sérstakur húsnæðisstuðningur skal falla niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að skilyrði reglna þessara eru ekki lengur uppfyllt. Í þeim tilfellum skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga tilkynna umsækjanda að fyrirhugað sé að fella niður greiðslur og upplýsa um hvaða ástæður liggja að baki þeirri ákvörðun.
Sérstakur húsnæðisstuðningur skal þó falla niður frá og með þeim degi þegar leigusamningur fellur úr gildi.
8. gr. Frestun greiðslna
Þegar um er að ræða frestun greiðslu húsnæðisbóta frá HMS skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga fresta greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings þar til greiðsla húsnæðisbóta fer fram hjá HMS. Jafnframt er heimilt að fresta greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings þó að greiðsla húsnæðisbóta hafi farið fram enda séu ríkar málefnalegar ástæður fyrir því.
Í framangreindum tilfellum skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga tilkynna umsækjanda án tafar að fyrirhugað sé að fresta greiðslu.
9. gr. Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna
Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra/forsjáraðila 15 – 17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist/námsgörðum eða í herbergi í samþykktu íbúðarhúnsæði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra/forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð, þó aldrei hærri en kr. 25.000,-. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns.
Ákvæði 3.-5. gr. reglna þessara gilda ekki um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15 – 17 ára barna.
IV. kafli Endurnýjun umsóknar, upplýsingarskylda og endurskoðun ákvörðunar
10. gr. Endurnýjun umsóknar
Til þess að viðhalda gildi umsókna þarf umsækjandi að endurnýja umsókn þegar samþykkt fellur úr gildi og/eða að lágmarki á 12 mánaða fresti og fyrir 15. september ár hvert. Endurnýjun umsóknar skal vera skrifleg. Við endurnýjun umsóknar skal kanna hvort skilyrðum 3. gr. reglna þessara sé fullnægt.
11. gr. Breytingar á aðstæðum
Umsækjandi skal upplýsa Félags-og skólaþjónustu Snæfellinga um allar þær breytingar sem verða á aðstæðum hans og áhrif kunna að hafa á fyrirliggjandi mat á rétti, eða þörf, til sérstaks húsnæðisstuðnings.
12. gr. Endurskoðun
Umsækjandi skal fullnægja skilyrðum 3. gr. reglna þessara frá því umsókn er samþykkt og á meðan hann fær sérstakan húsnæðisstuðning á grundvelli gildandi leigusamnings.
Rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings skal endurskoða í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna, sbr. 14. gr. reglna þessara. Fjárhæð húsnæðisbóta er þá endurreiknuð m.a. vegna nýrra upplýsinga um fjölda heimilismanna, tekjur, eignir eða húsnæðiskostnað. Umsækjanda ber að upplýsa um slíkar breytingar.
13. gr. Leiðrétting á sérstökum húsnæðisstuðningi
Hafi fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings verið hærri en umsækjandi átti rétt til á umræddu tímabili ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var. Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga er heimilt að draga ofgreiddan sérstakan húsnæðisstuðning frá síðar tilkomnum sérstökum húsnæðisstuðningi til sama aðila á næstu tólf mánuðum eftir endurskoðun.
Hafi fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings verið lægri en umsækjandi átti rétt til á umræddu tímabili ber að greiða þá fjárhæð sem vangreidd var.
14. gr. Rangar eða villandi upplýsingar
Sérstakur húsnæðisstuðningur sem veittur er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hálfu umsækjanda er endurkræfur, samkvæmt almennum reglum kröfuréttar.
Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri á að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.
V. kafli Málsmeðferð
15. gr. Könnun á aðstæðum
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning hefur borist. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.
Áður en lokaafgreiðsla fer fram, og áður en umsækjandi er látinn vita um niðurstöðu, skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga fá staðfestingu og samþykki viðkomandi sveitarfélags á greiðslu.
16. gr. Samvinna við umsækjanda
Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og ákvarðanatöku, skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, en að öðrum kosti við umboðsmann hans ef við á. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.
17. gr. Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi umsækjanda skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er leynt eiga að fara samkvæmt lögum eða eðli máls er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi aðila nema að fengnu samþykki viðkomandi. Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það er í samræmi við lög og stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
18. gr. Leiðbeiningar til umsækjanda
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Þá skal starfsmaður einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna umsóknar um sérstakan húsnæðisstuðning.
19. gr. Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum
Starfsmenn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði Félagsmálanefndar Snæfellinga og sveitarfélaganna sem að henni standa.
Heimilt er að veita undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir en umsækjandi þarf að fara fram á það með sérstakri beiðni innan fjögurra vikna frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun. Félagsmálanefnd Snæfellinga skal fjalla um umsóknina og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Umsækjandi getur skotið ákvörðun Félagsmálanefndar Snæfellinga til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var kunngerð ákvörðun velferðarráðs.
20. gr. Kynning á ákvörðun um sérstakan húsnæðsstuðning
Kynna skal niðurstöðu afgreiðslu umsóknar um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir umsækjanda með skriflegum hætti svo fljótt sem unnt er, að undangengnu samþykki viðkomandi sveitarfélags. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti.
21. gr. Gildistaka
Reglur þessar taka gildi frá og með 1.. desember 2025 Með reglum þessum falla úr gildi reglur um sérstakan húsnæðsstuðning Eyja- og Miklaholtshrepps, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólms frá 1. janúar 2017.
Upphæðir þessar miða við vísitölu neysluverðs í ágúst 2025 og eru uppreiknaðar árlega í ágúst.
7. gr.
Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings
Skilyrði þess að umsækjandi fái greiddan sérstakan húsnæðisstuðning er að hann fái einnig greiddar húsnæðisbætur á grundvelli laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur.
Sérstakur húsnæðisstuðningur greiðist umsækjanda í fyrstu viku hvers almanaksmánaðar og er greiddur eftir á fyrir leigutíma undanfarandi almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hefjist leigutími síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag almanaksmánaðar. Samningur sem kann að vera í gildi milli umsækjanda og leigusala eða þriðja aðila um fyrirframgreiðslu húsnæðiskostnaðar breytir engu hér um.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er ekki greiddur aftur í tímann.
Sveitarfélögum á Snæfellsnesi er heimilt að greiða sérstakan húsnæðisstuðning til leigusala samkvæmt skriflegri beiðni umsækjanda.
Sérstakur húsnæðisstuðningur skal falla niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að skilyrði reglna þessara eru ekki lengur uppfyllt. Í þeim tilfellum skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga tilkynna umsækjanda að fyrirhugað sé að fella niður greiðslur og upplýsa um hvaða ástæður liggja að baki þeirri ákvörðun.
Sérstakur húsnæðisstuðningur skal þó falla niður frá og með þeim degi þegar leigusamningur fellur úr gildi.
8. gr.
Frestun greiðslna
Þegar um er að ræða frestun greiðslu húsnæðisbóta frá HMS skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga fresta greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings þar til greiðsla húsnæðisbóta fer fram hjá HMS. Jafnframt er heimilt að fresta greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings þó að greiðsla húsnæðisbóta hafi farið fram enda séu ríkar málefnalegar ástæður fyrir því.
Í framangreindum tilfellum skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga tilkynna umsækjanda án tafar að fyrirhugað sé að fresta greiðslu.
9. gr.
Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna
Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra/forsjáraðila 15 – 17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist/námsgörðum eða í herbergi í samþykktu íbúðarhúnsæði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra/forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð, þó aldrei hærri en kr. 25.000,-. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns.
Ákvæði 3.-5. gr. reglna þessara gilda ekki um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15 – 17 ára barna.
IV. kafli
Endurnýjun umsóknar, upplýsingarskylda og endurskoðun ákvörðunar
10. gr.
Endurnýjun umsóknar
Til þess að viðhalda gildi umsókna þarf umsækjandi að endurnýja umsókn þegar samþykkt fellur úr gildi og/eða að lágmarki á 12 mánaða fresti og fyrir 15. september ár hvert. Endurnýjun umsóknar skal vera skrifleg. Við endurnýjun umsóknar skal kanna hvort skilyrðum 3. gr. reglna þessara sé fullnægt.
11. gr.
Breytingar á aðstæðum
Umsækjandi skal upplýsa Félags-og skólaþjónustu Snæfellinga um allar þær breytingar sem verða á aðstæðum hans og áhrif kunna að hafa á fyrirliggjandi mat á rétti, eða þörf, til sérstaks húsnæðisstuðnings.
12. gr.
Endurskoðun
Umsækjandi skal fullnægja skilyrðum 3. gr. reglna þessara frá því umsókn er samþykkt og á meðan hann fær sérstakan húsnæðisstuðning á grundvelli gildandi leigusamnings.
Rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings skal endurskoða í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna, sbr. 14. gr. reglna þessara. Fjárhæð húsnæðisbóta er þá endurreiknuð m.a. vegna nýrra upplýsinga um fjölda heimilismanna, tekjur, eignir eða húsnæðiskostnað. Umsækjanda ber að upplýsa um slíkar breytingar.
13. gr.
Leiðrétting á sérstökum húsnæðisstuðningi
Hafi fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings verið hærri en umsækjandi átti rétt til á umræddu tímabili ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var. Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga er heimilt að draga ofgreiddan sérstakan húsnæðisstuðning frá síðar tilkomnum sérstökum húsnæðisstuðningi til sama aðila á næstu tólf mánuðum eftir endurskoðun.
Hafi fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings verið lægri en umsækjandi átti rétt til á umræddu tímabili ber að greiða þá fjárhæð sem vangreidd var.
14. gr.
Rangar eða villandi upplýsingar
Sérstakur húsnæðisstuðningur sem veittur er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hálfu umsækjanda er endurkræfur, samkvæmt almennum reglum kröfuréttar.
Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri á að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.
V. kafli
Málsmeðferð
15. gr.
Könnun á aðstæðum
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning hefur borist. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.
Áður en lokaafgreiðsla fer fram, og áður en umsækjandi er látinn vita um niðurstöðu, skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga fá staðfestingu og samþykki viðkomandi sveitarfélags á greiðslu.
16. gr.
Samvinna við umsækjanda
Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og ákvarðanatöku, skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, en að öðrum kosti við umboðsmann hans ef við á. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.
17. gr.
Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi umsækjanda skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er leynt eiga að fara samkvæmt lögum eða eðli máls er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi aðila nema að fengnu samþykki viðkomandi. Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það er í samræmi við lög og stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
18. gr.
Leiðbeiningar til umsækjanda
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Þá skal starfsmaður einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna umsóknar um sérstakan húsnæðisstuðning.
19. gr.
Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum
Starfsmenn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði Félagsmálanefndar Snæfellinga og sveitarfélaganna sem að henni standa.
Heimilt er að veita undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir en umsækjandi þarf að fara fram á það með sérstakri beiðni innan fjögurra vikna frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun. Félagsmálanefnd Snæfellinga skal fjalla um umsóknina og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Umsækjandi getur skotið ákvörðun Félagsmálanefndar Snæfellinga til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var kunngerð ákvörðun velferðarráðs.
20. gr.
Kynning á ákvörðun um sérstakan húsnæðsstuðning
Kynna skal niðurstöðu afgreiðslu umsóknar um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir umsækjanda með skriflegum hætti svo fljótt sem unnt er, að undangengnu samþykki viðkomandi sveitarfélags. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti.
21. gr.
Gildistaka
Reglur þessar taka gildi frá og með 1. september 2025 Með reglum þessum falla úr gildi reglur um sérstakan húsnæðsstuðning Eyja- og Miklaholtshrepps, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólms frá 1. janúar 2017.
Fylgiskjal I: sundurliðun tekjuviðmiða.
Fylgiskjal II: útreikningur sértækra húsnæðisbóta.
Fylgiskjal 1
Hlutfall skerðingar á sértækum húsnæðisstuðningi miðað við tekjur, skv. 6.gr.
Fjöldi heimilismanna: 1
1.287.000
429.000
5.153.000
5.582.000
25%
skerðing
5.582.000
6.011.000
50%
skerðing
6.011.000
6.440.000
75%
skerðing
Fjöldi heimilismanna: 2
1.705.000
568.333
6.815.000
7.383.333
25%
skerðing
7.383.333
7.951.667
50%
skerðing
7.951.667
8.520.000
75%
skerðing
Fjöldi heimilismanna: 3
1.995.000
665.000
7.975.000
8.640.000
25%
skerðing
8.640.000
9.305.000
50%
skerðing
9.305.000
9.970.000
75%
skerðing
Fjöldi heimilismanna: 4+
2.205.000
735.000
8.645.000
9.380.000
25%
skerðing
9.380.000
10.115.000
50%
skerðing
10.115.000
10.850.000
75%
skerðing
Reglur samþykktar í bæjar- og sveitarstjórnum á Snæfellsnesi haustið 2025 og tóku gildi 01.01.2026
