Brynja Mjöll Ólafsdóttir • 3. október 2026

Fræðsludagur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Þann 29. september var Fræðsludagur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga haldinn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.

Á dagskrá voru fjölbreytt og áhugaverð erindi um mikilvæg málefni sem tengjast starfi með börnum, ungmennum og fjölskyldum. Fjallað var meðal annars um erfið mál og ofbeldi, barnavernd, skólahöfnun og skólatengsl, tví- og fjöltyngi og jákvæð samskipti.

Við þökkum fyrirlesurum kærlega fyrir fróðleg og gagnleg erindi og öllum sem tóku þátt fyrir góða samveru og ánægjulegan fræðsludag.