Ingveldur Eyþórsdóttir • 12. maí 2026
Leiðbeinandi óskast í Smiðjuna
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf í Smiðjunni í Ólafsvík, virkni og hæfingastöð fyrir fullorðið fólk með skerta starfsgetu.
Um er að ræða 100% starf á dagvinnutíma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð íslenskukunnátta er krafa.
- Þekking á málaflokk fólks með fötlun er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta er kostur.
- Hreint sakavottorð er krafa.
- Stundvísi er mikilvæg.
- Geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleika.
- Búa yfir samstarfsvilja og þolinmæði ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á málefnum fólks með fötlun.
- Samviskusemi og skipulögð vinnubrögð í daglegu starfi og samskiptum.
- Færni í að eiga gott samstarf og samskipti.
- Æskilegt er að vera við góða líkamlega og andlega heilsu.
- Framfylgir hlutverki og markmiðum þjónustueiningar sem leiðbeinandi starfar á, undir stjórn yfirmanns og í samvinnu við hann.
- Smiðjan er reyklaus vinnustaður
- Laun skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og viðkomandi stéttarfélags.
- Umsækjandi þarf að geta hafið störf frá og með mánudeginum 17.ágúst 2026
- Ráðið er í starfið tímabundið til 1 árs vegna barneignar leyfis.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórheiður E. Sigurðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi
Smiðjunnar á netfangi: thorheidur@fssf.is
Umsóknarfrestur er til og með 25.maí 2026
