Reglur í Eyja- og Miklaholtshreppi, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ og Sveitarfélaginu Stykkishólmi um fjárhagsaðastoð


I. kafli Grundvöllur þjónustu


1.gr. Lagagrundvöllur


Sveitafélögum er skylt skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV, V. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum.


Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Fólk sem er í skráð í

sambúð hjá Þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón. Sambúðin skal hafa verið skráð hjá

Þjóðskrá í eitt ár áður en umsókn er lögð fram, sbr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.


2. gr. Markmið með fjárhagsaðstoð


Markmið fjárhagsaðstoðar er að tryggja að íbúar í Eyja- og Miklaholtshreppi, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ og Sveitarfélaginu Stykkishólmi, geti séð fyrir sér og sínum með því að veita þeim þá fjárhagslegu aðstoð sem nauðsyn krefur. Fjárhagsaðstoð skal veitt íbúum í tímabundnum erfiðleikum og er aðstoð til að mæta grunnþörfum.



Fjárhagsaðstoð er veitt einstaklingum og fjölskyldum sem hafa ónógar tekjur sér og sínum til framfærslu, sbr. 12. gr. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð getur verið tvenns konar:


a) Almennur framfærslustuðningur

b) Stuðningur vegna sérstakra aðstæðna


Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði á vegum sveitarfélagsins, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.


3. gr. Skilyrði fjárhagsaðstoðar


1) Umsækjandi skal eiga lögheimili í Eyja- og Miklaholtshreppi, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ eða Sveitarfélaginu Stykkishólmi og dvelja á Íslandi á því tímabili sem hann fær fjárhagsaðstoð í gegnum Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.

Telji starfsmaður dvöl umsækjanda í sveitarfélaginu, sem skráður er þar með lögheimili, ekki ígildi fastrar búsetu, sbr. ákvæði laga um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018, skaltekin ákvörðun um hvort málið verði sent Þjóðskrá til nánari athugunar.


2) Að tekjur umsækjanda fyrir tekjuskatt séu undir viðmiðunarfjárhæðum fjárhagsaðstoðar skv. 9. gr.


Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er ætíð endurkræf og getur lögheimilissveitarfélag endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar.


Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur vísvitandi veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar. Í alvarlegum tilvikum skal málið tilkynnt til lögreglu.


Kanna skal til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, s.s. frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum,

lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Ávallt skal kanna möguleika á

annarri aðstoð en fjárhagsaðstoð s.s. ráðgjöf og leiðbeiningum, samhliða mati á rétti til fjárhagsaðstoðar.


 II. kafli


Umsókn og mat


4.gr Umsókn


Umsókn skal leggja fram í þjónustugátt Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka og barna á framfæri og upplýsingar um skráningu í nám. Umsækjanda ber að leggja fram dvalarleyfi í þeim tilfellum sem það á við. Afgreiðsla umsókna fer fram á afgreiðslufundi félagsþjónustu Snæfellinga. Að öllu jöfnu þarf umsókn að berast á milli 20. - 25. hvers mánaðar.


1) Umsókn skal fylgja yfirlit yfir eignir og tekjur vegna síðastliðins árs, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsókn er lögð fram og mánuðinn á undan, þar með taldar greiðslur frá Tryggingastofnun ríksins, innlendum ogerlendum lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun, sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bönkum, sparisjóðum,lánastofnunum eða öðrum aðilum, auk mæðra- og feðralauna. Einnig ber að skila erlendu skattframtali hafi viðkomandi eða sambúðaraðili búið erlendis á yfirstandandi ári eða síðastatekjuári. Erlendum ríkisborgurum ber að skila inn staðfestingu á eignastöðu sinni íríkisfangslandi og þegar við á, yfirliti yfir tekjur vegna eigna.


2) Þegar umsækjandi er atvinnulaus skal hann skrá sig hjá Vinnumálastofnun og leggja fram staðfestingu þess efnis ásamt staðfestingu á réttindastöðu sinni hjá Vinnumálastofnun og greiðslur bóta. Umsækjandi skal sýna fram á virka atvinnuleit á Íslandi. Hafi umsækjandi hvorki skráð sig hjá Vinnumálastofnun né sinnt virkni, án viðhlítandi skýringa, missir hann hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar það tímabil, sbr. 7. gr. reglna þessara.


3) Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda eða hann er ekki fær um að    sinna atvinnu vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði sem skal útgefið af heilsugæslu- eða sérfræðilækni umsækjanda. Í læknisvottorði skal koma fram mat læknis á óvinnufærni og áætlun um endurhæfingu, þegar við á. Læknisvottorð skal að jafnaði ekki vera eldra en fjögurra vikna þegar það er lagt fram og ekki til lengri tíma en þriggja mánaða nema annað komi fram í einstaklingsáætlun.


4) Erlendum ríkisborgurum ríkis innan EES ber að framvísa staðfestingu á lögheimilisskráningu. Réttur til fjárhagsaðstoðar getur myndast í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir skráningu lögheimilis. Sé erlendur ríkisborgari með dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða myndast réttur til fjárhagsaðstoðar við skráningu lögheimilis. Sé erlendur ríkisborgari með dvalarleyfi á þeim forsendum að skyldu/tengdur aðili ábyrgist framfærslu hans, á hann að jafnaði ekki rétt á fjárhagsaðstoð. Upplýsa ber umsækjanda um möguleg neikvæð áhrif veittrar fjárhagsaðstoðar á umsókn um íslenskan ríkisborgararétt skv. 9. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt.


5) Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga getur ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um umsækjanda bæði frá innlendum og erlendum stofnunum, m.a. hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, Vinnumálastofnun, Útlendingastofnun, bönkum, sparisjóðum, og lífeyrissjóðum. Skal það gert í samráði við umsækjanda.

 

6) Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi sanni á sér deili í eigin persónu og framvísi gildu persónuskilríki við mætingu á boðaða fundi. Sé því ekki sinnt missir hann hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar. Við fyrstu fjarvist er heimilt að skerða fjárhagsaðstoð um helming, í annað skipti skerðist fjárhagsaðstoð um 75% og ef ekki er mætt í þrjú skipti þann mánuð fellur greiðsla fjárhagsaðstoðar niður. Undantekning frá skerðingu er að viðkomandi hafi gilda ástæðu s.s. meðframvísun læknisvottorðs eða sambærilegum gögnum.


5. gr. Gagnasöfnun


Umsækjandi ber ábyrgð á öflun gagna og upplýsinga sem ber að skila vegna umsóknar um fjárhagsaðstoð og að upplýsingarnar séu réttar. Öllum gögnum skal skilað í síðasta lagi tveimur vikum eftir að umsókn hefur verið undirrituð. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti umboðsmann hans ef við á.


 Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði. Neiti umsækjandi að skila umbeðnum gögnum eða upplýsingum um sig eða maka stöðvast vinnsla umsóknar hans. Einnig skal afla upplýsinga um önnur atriði, t.d. félagslegar aðstæður, eftir því sem umsókn gefur tilefni til.


III.kafli


Réttur til fjárhagsaðstoðar


6 gr. Upphæðir fjárhagsaðstoðar


Fjárhæð fjárhagsaðstoðar til almennrar framfærslu tekur mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds.

Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er kr. 240.000.- á mánuði.

Fjárhæðir fjárhagsaðstoðar eru eftirfarandi:


1. Fjárhagsaðstoð einstaklings 18 ára og eldri sem rekur eigið heimili er 1,0 kvarði eða kr. 240.000.- á

mánuði.

2. Fjárhagsaðstoð hjóna/sambúðarfólks sem reka eigið heimili er 1.6 kvarði eða kr. 384.000.- á mánuði.

3. Fjárhagsaðstoð einstaklings sem heldur heimili með öðrum og beri hann sannanlega kostnað af eigin

húsnæði eða leiguhúsnæði skal reiknast 0,8 kvarði af grunnfjárhæð eða kr. 192.000.- á mánuði.

4. Fjárhagsaðstoð einstaklings 18 ára og eldri sem ekki ber kostnað af eigin húsnæði eða leggur fram

þinglýstan leigusamning eða aðra staðfestingu á leigugreiðslum sl. 3 mánuði er 0.6 kvarði af

grunnfjárhæð eða kr. 144.000.-

5. Fjárhagsaðstoð einstaklings sem býr hjá foreldrum og hefur forsjá og lögheimili barns/barna er 0,8

kvarði af grunnfjárhæð eða kr. 192.000.-

6. Fjárhagsaðstoð einstaklings 18-25 ára sem býr hjá foreldrum eða ættingjum er 0.6 kvarði af

grunnfjárhæð eða kr. 144.000.-

7. Fjárhagsaðstoð einstaklings sem er inniliggjandi á sjúkrastofnun eða í áfengis- eða vímuefnameðferð

er 0.4 kvarði af grunnfjárhæð eða kr. 96.000.-


Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er ákveðin af sveitarstjórnum á þjónustusvæði Félags- og skólaþjónustu

Snæfellinga. Hún er bundin launavísitölu og er endurskoðuð í janúar ár hvert.


7. gr. Skerðing fjárhagsaðstoðar


Hafi umsækjandi hafnað atvinnu, sagt starfi sínu lausu, eigi sjálfur sök á uppsögn eða hafi fyrirgert bótarétti sínum hjá Vinnumálastofnun er heimilt að skerða framfærslu um helming þann mánuðinn og mánuðinn þar á eftir. Einnig skerðist réttur ef að umsækjandi hafnar eða hefur hætt þátttöku á námsskeiði, átaksverkefni, endurhæfingu og eða einstaklingsmiðaðri áætlun hjá ráðgjafa, um helming þann mánuð og mánuðinn þar á eftir.


Á meðan umsókn einstaklings er í vinnslu hjá Vinnumálastofnun vegna umsóknar um atvinnuleysisbætur eða hjá Tryggingastofnun vegna umsóknar um endurhæfingar- eða örorkulífeyri, á viðkomandi ekki rétt á fjárhagsaðstoð.


8 gr. Eignir umsækjanda


Við útreikning á fjárhagsaðstoð skal taka mið af eignum öðrum en íbúðarhúsnæði til eigin nota og jörð sem umsækjandi býr á. Sé um aðrar eignir að ræða; s.s. fasteignir eða lausafé, skal Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga fjalla sérstaklega um málið. Umsækjanda skal þá að jafnaði vísað á almenna lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða þó að tekjur hans séu undir viðmiðunarmörkum.


9 gr. Tekjur umsækjanda


Allar tekjur umsækjanda og maka ef við á, í þeim mánuði sem sótt er um og tveimur mánuðum á undan eru taldar með við mat á fjárhagsaðstoð. Með tekjum er átt við allar innlendar og erlendar skattskyldar tekjur einstaklings og sambúðaraðila s.s. atvinnutekjur, aðrar skattskyldar tekjur, greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, Sjúkratryggingum Íslands eða sjúkrasjóðum stéttarfélaga, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur, verktakagreiðslur, greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og

mæðra og feðralaun.


Greiðslur vegna barna, húsnæðisbætur, sérstakur húsnæðisstuðningur, vaxtabætur, framlag vegna menntunar fyrir 18 til 20 ára einstaklinga, oftast greitt frá Tryggingarstofnun ríkisins teljast ekki til skattskyldra tekna. Að jafnaði skal miða við heildartekjur áður en tekjuskattur hefur verið dreginn frá.


Ef viðkomandi hefur verið í tímabundnu starfi, er telur að hámarki þrjá mánuði, s.s. sumarstarf, tekur fjárhagsaðstoð ekki mið af tekjum síðastliðna þriggja mánaða, séu tekjur undir 400.000 kr. á mánuði.


Eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur eignir umfram íbúðarhúsnæði sem umsækjandi eða fjölskylda hans býr í og umfram eina fjölskyldubifreið, eða hafi hann nýlega hagnast af sölu eigna sinna,skal honum að jafnaði vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð.


Ef umsækjandi, maki hans eða sambúðaraðili eiga eignir eða eigið fjármagn sem nýst geta til framfærslu á hann ekki rétt á fjárhagsaðstoð.


10. gr. Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar, hlutastörf


Atvinnurekandi eða sjálfstætt starfandi einstaklingur á kost á fjárhagsaðstoð hafi hann hætt rekstri og lokað vsk-númeri auk þess að hafa leitað réttar síns til atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Sé umsækjandi í hlutastarfi með tekjur undir grunnfjárhæð skal gerð krafa um að viðkomandi skrái sig hjá Vinnumálastofnun.


11. gr. Mat á tekjum bænda


Stundi umsækjandi búrekstur skal mat á tekjum byggt á skattframtali síðasta árs vegna umsókna sem berast fyrir 1. júlí, en með umsóknum sem berast síðar skal einnig fylgja rekstrar- og efnahagsyfirlit uppfært til 30. júní. Þá skulu einnig liggja fyrir upplýsingar um greiðslumark búsins, breytingar á bústofni, yfirlit yfir eignir og skuldir aðrar en þær er tengjast viðkomandi rekstri, auk tekna utan bús undanfarna tvo mánuði.


12.gr. Tímabil fjárhagsaðstoðar


Ákvarðanir um fjárhagsaðstoð skulu að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði. Aðstæður þeirra sem hafa fengið fjárhagsaðstoð í þrjá mánuði samfellt skulu kannaðar sérstaklega og samvinna höfð með félagslegri ráðgjöf.


Fjárhagsaðstoð er að jafnaði ekki greidd aftur í tímann. Hafi réttur til fjárhagsaðstoðar verið ótvíræður

mánuðinn áður en sótt er um, er þó heimilt að greiða fjárhagsaðstoð einn mánuð aftur í tímann.


13. gr. Fjárhagsaðstoð sem lán


Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð sem lán óski umsækjandi þess eða könnun á aðstæðum leiðir í ljós að eðlilegt sé að gera kröfur um endurgreiðslur með tilliti til eigna og framtíðartekna. Eftirfarandi skilyrði fyrir lánveitingu skulu uppfyllt:


a) Umsækjandi uppfyllir almenn skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð


b) Fyrir liggi mat á endurgreiðslugetu umsækjanda. Aðeins skal veitt lán þegar ljóst er að  umsækjandi geti staðið í skil á afborgunum.


Á þetta eingöngu við um einstaklinga sem bíða eftir afgreiðslu á umsókn, s.s. hjá Tryggingastofnun ríkisins, Vinnumálastofnun, Sjúkratryggingum Íslands, sjúkrasjóðum stéttarfélaga, lífeyrissjóðum eða öðrum stofnunum.


Þegar einstaklingur hefur fengið bætur sínar greiddar aftur í tímann frá viðkomandi stofnun ber honum að greiða lánið til baka með eingreiðslu. Í undantekningartilfellum er heimilt að skipta greiðslum niður með samkomulagi þar um. Fái umsækjandi ekki samþykkta umsókn frá fyrrgreindum aðilum er heimilt að breyta láni í styrk.


IV. kafli Fjárhagsaðstoð vegna sérstakra aðstæðna


14 gr. Aðstoð til tekjulágra foreldra vegna barna á þeirra framfæri


Heimilt er að veita sérstaka fjárhagsaðstoð til foreldra á fjárhagsaðstoð sem eru með forsjá barna sinna. Ávallt er um að ræða tímabundinn stuðning sem endurskoðaður skal á 6 mánaða fresti. Viðmiðunarmörk aðstoðar með hverju barni eru 20.000 kr. á mánuði. Um er að ræða stuðning til að greiða eftirfarandi:


1) Daggæslu barna í heimahúsum, leikskóla og skólafrístund.

2) Sumardvöl og/eða þátttöku barna í þroskandi félags- og tómstundarstarfi.

3) Sérstakan kostnað vegna skóla og tómstunda s.s. ferðakostnaðar og fatnaðar.

4) Læknis- og lyfjakostnað.

5) Námsstyrk fyrir börn 16-18 ára. Styrkurinn skal miða að því að greiða útlagðann bókakostnað og

skólagjöld.


Í undanþágu tilvikum þegar um er að ræða meðferðar- og/eða stuðningssjónarmið vegna fyrirbyggjandi aðgerða í þágu barns er heimilt að veita foreldrum styrk sem nemur 50% af viðmiðunarmörkum aðstoðar með hverju barni á ári. Liggja skal fyrir samkomulag um félagslega ráðgjöf.


15 gr.  Námsstyrkur


Heimilt er að veita sérstaka fjárhagsaðstoð til náms til einstaklinga á aldrinum 18-25 ára sem átt hafa í félagslegum erfiðleikum og hafa ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla, og hafa haft atvinnutekjur undir eða við reiknaða fjárþörf sl. tólf mánuði. Leggja þarf inn umsókn tveimur mánuðum áður en námið hefst.


Starfsmaður og námsmaður skulu gera með sér samkomulag um hvernig skuli staðið að eftirliti varðandi skólasókn og námsframvindu.


Heimilt er að veita nýbúum styrk til íslenskunáms. Skilyrði er að umsækjandi uppfylli skilyrði 3 gr. þessara reglna og ljúki námskeiðinu.


16. gr. Fjárhagsaðstoð vegna útfararkostnaðar


Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið geti ekki staðið undir útför hins látna. Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 250.000 kr. Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk:


1) Staðfest ljósrit af skattaframtali hins látna.

2) Launaseðlar og greiðsluyfirlit frá Tryggingastofnun ríkisins og lífeyrissjóðum.

3) Staðfesting frá stéttarfélagi um að viðkomandi eigi ekki rétt til útfararstyrks.

4) Tilkynning sýslumanns um skiptalok á grundvelli eignayfirlýsingar, sbr. 25. gr. laga um skipti á

dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, eða einkaskiptaleyfi útgefið af sýslumanni til erfingja skv. 31. gr.,

sbr. 28. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl.

5) Heimilt er að veita eftirlifandi maka lán eða styrk vegna útfararkostnaðar þegar dánarbúið getur

ekki greitt fyrir útför hins látna og eignir eftirlifandi maka eru ekki aðrar en íbúðarhúsnæði sem

umsækjandi býr í.


17. gr. Styrkur til húsbúnaðarkaupa


Húsbúnaðarstyrk má veita þeim einstaklingum sem eru eignalausir, eiga í miklum félagslegum erfiðleikum, eru með tekjur á viðmiðunarmörkum fjárhagsaðstoðar og eru að hefja búskap í fyrsta sinn eða eiga ekki húsbúnað eftir langvarandi heimilisleysi. Húsbúnaðarstyrkur getur að hámarki orðið kr. 200.000 og greiðist að jafnaði aðeins í eitt skipti.


18. gr. Greiðslur sérfræðiaðstoðar


Meðferðarviðtöl: Heimilt er að veita einstaklingum fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá meðferðar- aðilum sem hafa starfsleyfi frá embætti landlæknis s.s. félagsráðgjöfum, geðlæknum og sálfræðingum, ef það er liður í umfangsmeiri stuðningi og fyrirsjáanlegt að eigi sé hægt að veita þjónustuna innan Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Hámarksaðstoð er 20.000 krónur fyrir hvert viðtal og er að hámarki veittur styrkur til fimm viðtala á ári.


Í undantekningartilvikum er heimilt að veita umsækjenda viðbótarstyrk til greiðslu allt að fimm viðtölum ef brýnar ástæður liggja að baki. Umsögn og matsskýrsla meðferðaraðila skal liggja til grundvallar, sé sótt um fleiri viðtöl.


Einnig getur aðstoðin verið veitt vegna annarskonar sérfræðikostnaðar t.d. læknis- og lyfjakostnaðar:

a) Einstaklingum sem búa við mikla og langvarandi félagslega erfiðleika.

b) Einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir íþyngjandi áföllum, svo sem alvarlegu ofbeldi.


Hámarksupphæð er þá 60.000 kr. ár ári.


Tannlæknaþjónusta: Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga til einstaklinga sem hafa fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu undanfarna sex mánuði. Hámark aðstoðar skal vera 1/3 af grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar á 12 mánaða tímabili. Með umsókn skal fylgja kostnaðaráætlun tannlæknis.


Nauðsynleg hjálpartæki: Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu á kostnaðarhlut umsækjanda við kaup á nauðsynlegum hjálpartækjum s.s. gleraugum og heyrnatækjum til einstaklinga sem hafa fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu undanfarna sex mánuði. Hámark aðstoðar á ári er ¼ af grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar.


Réttur til styrks hjá öðrum aðilum s.s. stéttarfélagi þarf í öllum tilvikum að hafa verið kannaður og nýttur.


Styrkur sem umsækjandi kann að eiga rétt á frá öðrum aðilum kemur til frádráttar aðstoð Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Greitt er gegn framvísun reikninga.


19.gr. Desemberstyrkur


Heimilt er að veita þeim sem njóta fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu sérstaka desemberuppbót sem nemur fjórðungi af grunnfjárhæð. Styrkurinn er að jafnaði einungis veittur þeim sem hafa verið á fjárhagsaðstoð undanfarna þrjá mánuði eða lengur. Heimilt er að veita sérstaka aðstoð vegna barna sem nemur 15.000 kr. á barn sem hefur lögheimili hjá og er í forsjá umsækjenda.


V. kafli Málsmeðferð



20. gr. Leiðbeiningar og ráðgjöf


Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og ákvarðanatöku skal hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en af öðrum kosti við persónulegan talsmann hans eða umboðsmanns hans ef við á. Persónulegur talsmaður skal leggja fram samkomulag við hinn fatlaða sbr. ákvæði 1.mgr. 7.gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011.


Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.


Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður Félags – og skólaþjónustu Snæfellinga bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um önnur réttindi sem hann kann að eiga. Þá skal starfmaður einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna umsóknar skv. reglum þessum og aðstoða við öflun nauðsynlegra gagna ef þörf er á.


21. gr. Varðveisla ganga, trúnaður og aðgangur að gögnum


Málsgögn er varða persónuupplýsingar skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn og fulltrúar sveitarfélagsins kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi. Starfsmenn eru bundnir trúnaði helst þagnarskyldan þótt látið sé af störfum.


Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti

sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.


22. gr. Heimild til ákvarðana


Starfsmenn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði sveitarstjórna á Snæfellsnesi. Ákvarðanir þeirra eru endanlegar og krefjast ekki staðfestingar velferðarnefndar eða sveitarstjórnar.


23. gr. Kynning á ákvörðun


Kynna skal niðurstöðu umsóknar fyrir umsækjanda með skriflegum hætti svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til viðeigandi ákvæða og reglna, eftir því sem á við. Þar skal jafnframt kynntur réttur umsækjanda til frekari rökstuðnings og réttur til að áfrýja afgreiðslunni.


24. gr. Málskotsréttur


Umsækjandi getur skotið ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kæra skal berast úrskurðar-nefnd  velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina.


25. gr. Endurupptaka


Eftir að ákvörðun hefur verið tilkynnt aðila máls á hann rétt á því að mál hans sé tekið til meðferðar á ný,innan þriggja mánaða frá því ákvörðun var kynnt, ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum.


26. gr. Gildistaka


Reglur þessar taka gildi frá og með 01.02.2026.


Með reglum þessum falla úr gildi reglur um fjárhagsaðstoð frá 8. júní 2023.